Wednesday, August 16, 2006

Aldrei að nefna nöfn ... eða hvað

Ég hef haft það fyrir reglu að nefna engin fyrirtæki á nafn. Ég ætla að brjóta þessa reglu og setja hér inn póst sem ég sendi til OgVodafone. Ég skal líka nefna nöfn ef þjónustan er góð ... hún hefur sannarlega ekki verið það frá þessu fyrirtæki:

Ég skráði mig í Og1 pakkann hjá ykkur fyrri hluta þessa árs. Síðan þá hef ég lent í hverju veseninu á fætur öðru og er mjög ósáttur við þá þjónustu sem boðið hefur verið uppá.

Til að byrja með bjó ég útá landi og átti að borga 1.300 kr. til Símans og afganginn til OgVodafone. Stúlkan sem gekk frá þessu á þjónustuborði ykkar í Síðumúla gleymdi hinsvegar eitthvað af pappírum þannig að í sex vikur var ég að borga Símanum öll gjöld, og fékk því ekki þann afslátt sem er innifalinn í pakkanum. M.a. fékk ég ekki afslátt á ákveðnum símanúmerum til útlanda sem ég hafði skráð sem er sérlega slæmt þar sem konan mín er bresk og hún og börnin okkar tala reglulega við hennar fjölskyldu og vini þar úti. Þetta enduðuð þið með að leiðrétta, að hluta til, með því að draga ca. 2.000.- krónur af GSM reikningnum.

Í öðru lagi var ég látinn fá Rauter til að tengja við tölvuna og sagt að ég ætti að geta tengst netinu strax. Það gekk ekki og eftir þó nokkur símtöl við þjónustuverið (aldrei sömu manneskjuna samt) gat ég tengst ... viku seinna!

Í þriðja lagi er ég með frelsis síma frá Símanum og bað um að fá frelsis síma frá OgVodafone, til að ég gæti nýtt afsláttinn milli mín og konunnar. Ég var látinn fá SIM kort föstudaginn 10. mars og sagt að það yrði hringt í mig þegar kortið yrði virkt, sennilega á mánudeginum eftir helgi. Það hefur ekki enn verið hringt í mig núna, fimm mánuðum seinna. Þið getið sleppt því úr þessu, takk fyrir!

Síðast en ekki síst fluttist ég til Reykjavíkur þann 1. ágúst. 31. júlí hringdi ég í þjónustuver ykkar og tilkynnti þetta ásamt kennitölu þeirrar manneskju sem bjó þar o.s.frv. og bað um að símanúmerið yrði flutt. Mér var sagt að það ætti að vera komið 3. ágúst. 3. ágúst var ekkert komið og þegar ég hringdi næst var mér sagt að það tæki 5 til 10 virka daga. Mánudaginn 14 ágúst (10 virkum dögum eftir tilkynningu) var enn enginn heimasími kominn. Þegar þetta bréf er skrifað erum við að nálgast lok miðvikudagsins 16. ágúst (12 virkum dögum seinna) og enn er enginn heimasími kominn. Konan mín er að fara að kenna og á mun erfiðara með að undibúa kennslu fyrir 9-11 ára krakka án þess að komast inná netið.

Þegar ég kem heim í kvöld ætla ég mér að kíkja á 12 mánaða samninginn við ykkur og finna leið til að rifta honum. Ef það er ekki hægt munuð þið svo sannarlega ekki fá mín viðskipti eftir að honum lýkur ... ég versla við einhvern annan ... hvern sem er í rauninni ...

Þetta bréf verður sett á heimasíðu mína.

Þórarinn Freysson
Sími 426-9705 (ekki reyna að hringja, síminn er ekki tengdur)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home